Mýrin verður næst haldin dagana 15.-19. september 2012 í Norræna húsinu í Reykjavík. Þema hátíðarinnar er matur og matarmenning í barnabókmenntum og yfirskrift hátíðarinnar að þessu sinni því Matur úti í mýri. Hátíðin verður með svipuðu sniði og fyrri hátíðir þar sem erlendir og íslenskir barna- og unglingabókahöfundar og fræðimenn eru fengnir til að flytja fyrirlestra um barnabókmenntir og taka þátt í pallborðsumræðum. Þar að auki eru haldnar sýningar á myndskreytingum úr bókum, höfundar lesa margir upp úr verkum sínum fyrir aðdáendur á öllum aldri og fjöllistamenn tengja saman bókmenntaformið og önnur listform með tónverkum og leiksýningum.
